Færsluflokkur: Fjármál

Silfur Egils - skelfingarhrollur - "Umweltschmerzen"

... OG NEI,  eftirfarandi eru ekki upplýsingar frá Silfri Egils, 5.apríl, 2009, heldur útdráttur úr bókinni, Falið vald, ©1979, 1982 Jóhannes Björn Lúðvíksson  (bls. 103 og 108)

Las þessa bók á sínum tíma. Skelfingu lostin eftir lesturinn. Oft hefur verið minnst á hana. Mundi eftir efni hennar þegar ráðgert var að fá lán hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Þá hryllti mig upp. Þegar stjórnmálamaður(menn) lýsti því yfir að hann vildi hætta við AGS-lánið, róaðist ég. Það fékk engan hljómgrunn. Hugsaði svo ekki mikið um þetta, fyrr en nú að í Silfri Egils voru teknir tali tveir menn sem renndu stoðum undir fyrri ótta. Nú er ég satt að segja óttaslegin. Þeir sögðu sannar hryllingssögur, sem meiri en minni líkur eru á að verði okkar saga líka.

MUN EINHVER HLUSTA Á ÞÁ OG FARA AÐ RÁÐUM ÞEIRRA.

Útdráttur:

"Grundvallareðli yfirdráttarlánanna er að þau eru ímyndunar- eða platpeningar. Raunverulega eru þau færslur inn á tölvur ... Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn getur búið til yfirdráttarlán sem hljóðar upp á eina milljón eða 500 milljarða á tíu mínútum með einfaldri tölvuinnfærslu ... í janúar 1975, sem dæmi, þá hækkaði Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn yfirdráttarlán aðildarríkjanna um 40% eftir tíu mínútna umræður.

[Antony C. Sutton. THE WAR ON GOLD, bls. 145. 150.205.1977]

Hver borgar þá brúsann þegar Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn býr til peninga a þennan hátt? Það gera handhafar dollaraseðla, fólkið sem var svo saklaust að selja vinnu sína eða önnur verðmæti fyrir þennan pappír, þegar verðbólgan minnkar verðgildi þeirra. Sjóðurinn býr nefnilega til dollara (þ.e. lánunum er oftast skipt í dollara).

 

Helsta hlutverk Alþjóðabankans og dótturfyrirtækja hans hefur reynst vera að finna og greiða fyrir arðvænlegum fjárfestingum auðhringanna. Þegar sérfræðingar bankans koma t.d. til íslands í því augnamiði að "hjálpa" okkur að finna arðvænlegar fjárfestingarleiðir, þá mæla þeir aldrei með smáiðnaði eða yfirleitt nokkru sem við getum sjálf leyst af hendi. Þeir mæla frekar með álverksmiðjum og annarri stóriðju með tilheyrandi virkjunarframkvæmdum-verkum sem auðhringir koma til með að vinna. Við fáum lánaða Rockefellerpeninga og fyrirtækin sem framkvæmdu verkið eru Rockefellerfyrirtæki (eða því sem næst). Ef deilumál rísa á milli Rockefellerfyrirtækjanna og íslenska ríkisins (sem er mjög líklegt, því fyrirtækin fara oftast í skaðabótamál að verkinu loknu), þá er málinu vísað til gerðardóms sem Alþjóðabankinn setur upp (ICSID)-Rockefellergerðardóms, sem alltaf dæmir fyrirtækjunum í hag. Þess má geta, að samningar íslenska ríkisins við Alusuisse tryggja að deilum þeirra í millum sé vísað til gerðardóms bankans í Washington.

Þegar Alþjóðabankinn eða Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, sem er verk Harry Dexter White (C.F.R.), lána vanþróuðum ríkjum peninga, er venjulega sagt frá því eins og um einhvers konar gjafastarfsemi sé að ræða. Burt séð frá að þessi lán eru óspart notuð í pólitískum tilgangi og til að þröngva auðhringum inn á ríkin, þá hafa skuldir vanþróaðra landa aukist hröðum skrefum og námu 33 milljörðum dollara árið 1964. Afborganir þeirra og vextir af lánum námu þá um 3.5 milljörðum dollara á ári eða um 11 % andvirðis útflutnings þeirra. [Haraldur Jóhannsson. HEIMSKREPPAN OG HEIMSVIÐSKIPTIN. bls. 103. 1975]

Og enn herðist ólin.

Árið 1978 námu skuldir vanþróaðra landa orðið 180 milljörðum dollara (um 42% af þeirri upphæð kemur frá einkabönkum). Þessi upphæð er svo geigvænleg, að ríkin gera flest ekki betur en að slá ný lán til að geta borgað vexti og afborganir af gömlu lánunum."

Rafræn útgáfa: http://vald.org/falid_vald/kafli00.htm

 

falid_vald

 

 

 

 


Ráðum þá til að fjármagna þjóðarskuldirnar:

Æi, hérna klára ég 'gamalt blogg' sem ég byrjaði á fyrir alllöngu.  Þá fannst mér ég svo óviðjafnanlega fyndin að ætla að skrifa þettta. Svo rann af mér sjálfsánægjan og breyttist í sjálfsaulasýn og hallæriskennd. 

Hef fengið ákúrur frá bloggaðdáendum mínum fyrir skrifleysi (ok allavega frá öðrum þeirra) svo ég ákvað að nota áður óbirt gáfumannaskrif.

---*---*---*---*---*---*---*---*---*---*---*---*---*---*---*---*---*---*

Misjafnlega erum við skóuð til ýmissa starfa eða afreka. Bílaþjófar þykja t.d. afar slæm fyrirbæri (fyrir fórnarlömbin alltsvo). 

Hafi maður aftur á móti læst bíllyklana í bílnum, getur þó verið himnasending að hitta á gamlan bílaþjóf. Hann fer eitthvað svo létt með handtökin; kann þau svo vel. Rispar hvorki lakk né rúðu.

Einmitt vegna þess arna hefur mér stundum verið hugsað til þeirra sem gátu orðið forríkir á stuttum tíma. Komist frá venjulegum fræðingastörfum yfir í ofurlaunþega og stóreignamenn með fjármálakrækjur og eignir víðsvegar um heim.  Þeir gátu gert SÉR pening úr bókstaflega ENGU.  Öll þeirra ásjóna, umbúnaður, framkoma og framtak sýndu í skírri birtu að þar fóru menn sem kunnu sitt fag og gátu borist á og vöktu aðdáun, undrun og öfund.

Eitthvað þurftu þeir að fá lánað til að "hleypa blóði" í fjárfestingarnar.  En það var svo sem allt í lagi; þeir komust margir vel frá því. Ýmist með því að vera búnir að koma því í lóg eða senda það í sveit.  Þannig þurftu sumir ekkert að borga lánin aftur. Þau féllu sum bara einhvern veginn niður.

Er nokkuð annað sem íslensk þjóð þarfnast nú í sínum efnahagshrakföllum en menn sem

GETA GERT PENINGA ÚR ENGU FYRIR OKKUR

SAFNA AUÐI FYRIR OKKUR (t.d. gjaldeyrisvaraforða)

KOMA "HJÓLUM" ATVINNULÍFS OKKAR AF STAÐ

KOMA Á VELLYSTINGUM OKKAR FÓLKS

Og það besta sem þetta þýðir; VIÐ ÞURFUM EKKI EINU SINNI AÐ BORGA FYRIR LÁN, STYRK, STUÐNING EÐA ANNAÐ.

Inná með útrásarrumpulýðinn

 


BANKALEYNDIN AFNUMIN

Þá kom að því.

Lengi hefur þessa verið krafist, til þess að komast megi að hugsanlegum undanskotum fólks og fyrirtækja. Það er engin hemja að lög verndi lögbrjóta.

Það eru víst flestir sammála um nauðsyn þess að komast yfir upplýsingar um aðgerðir stjórnenda fjármálastofnana, sem vægast sagt virðast hafa verið "áhættusæknar". Eitt þessara orða sem notuð hafa verið um aðferðir framangreindra til að koma öllum almenningi á kaldan klaka.

Loksins er ALLT BIRT; allir bankareikningar, með tölu, útskrifaðir til hægðarauka fyrir skattayfirvöld við álögur og endurskoðun.  Hafirðu tekið að þér að safna púkkinu fyrir saumaklúbbsferðalagið eða golfferðina, kemur sá reikningur fram á pappír og/eða skjá og þar koma fram fjármagnstekjur og skattur.

Tekjurnar hækka (slíkar fjármagnstekjur)  Þeir sem þiggja lífeyri sæta svo lækkun hans af því að nú hafa tekjurnar hækkað of mikið. Þar gildir: fáirðu peninga einhversstaðar frá, munum við sjá til að það nýtist engan veginn, - við lækkum það sem þú færð annarsstaðar!!

Núna þarf ég líklega að skrifa RSK bréf og skýra út þessa gífurlegu fjármagnstekjur mínar; að við "stelpurnar" séum að safna fyrir utanlandsferð, en eins og flestir viti sé ekki hægt að standa í því núna.

ÆI, ÉG GLEYMDI, ÞETTA Á VIÐ UM ALMENNA BORGARA, ÓBREYTTA VERKAMENN EÐA LÍFEYRISÞEGA. ÞETTA NÆR VÍST EKKI TIL ÞEIRRA SEM ÞARF AÐ KANNA. ÞEIR ERU "STIK FRI" OG STANDA KEIKIR OG ÖRUGGIR MEÐ SIG - BAKVIÐ BANKALEYNDARVERNDARMÚRINN - OG GLOTTA.Devil

Við ættum eiginlega að sleppa pottunum núna og fara út með bala og hamra!Bandit

secrecy

Greindar vísitölur

Það getur ært óstöðugan að fylgjast með, skilja og vita hvernig nýta eigi vísitölur. Enda notaðar við mismunandi aðstæður.

Ekki skil ég notagildi þeirra allra og síst af öllu hvernig þessar vísitölur „verða til"; hvað býr að baki útreikninganna og hver sér um þá útreikninga. Flestir kannast við:

Neysluverðs-vísitölu       (a) til verðtryggingar b) með húsnæði c) án húsnæðis

Lánskjara-vísitölu

Byggingar-vísitölu

Launa-vísitölu

Greiðslujöfnunar-vísitala          (hugtak sem almenningar notar sjaldnast)

 

Margir bölsótast yfir verðtryggingu; tengingu við einhverja þessara vísitalna. Því er þó ekki þannig farið með mig. Vík að því síðar.

Það sem mér er þó óskiljanlegt, ef ég fer þá rétt með staðreyndir, er að ýmsar vörutegundir (stundum lítt þekktar/notaðar) skuli geta stýrt stöðu einhverrar vísitölu þannig að afborganir, og þar með lánin, verðtryggðra (vísitölutryggðra) -lána breytist (hækki)

Hvernig má það vera að uppskerubrestur í Brasilíu, hækki íbúðalánin okkar. Jæja, þetta var e.t.v. ekki rétt vísitala, en allavega komi við verðbólguþróun.

Ekki man ég eftir lækkun vísitalna. Og svo virðist sem eina vísitalan sem ekki bólgnar hjá okkur, sé greindarvísitalan.

Allar leiðréttingar, leiðbeiningar eru sannarlega vel þegnar.  Eins og ég sagði í upphafi, getur þetta ært óstöðugan og í þeim hópi er ég.


Svo mikill þungi er lagður í að sparka í næsta mann, að fólk tábrotnar...

... já, jafnvel fótbrotnar upp að mjöðm!

Vinna saman krakkar!

SAMAN skiljið þið!

S A M A N

Skóflupakkið getur ekki endalaust troðið marvaðann.


mbl.is Davíð og dularfulla bréfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frægur eða alræmdur

Frægur eða alræmdur


Sjúklingurinn > íslenska þjóðin

 img_5984

 

Ekki litist mér reglulega vel á að þurfa að fara í aðgerð eða til annarra lækninga hjá teymi sem ynni "saman" svipað og sumir pólitíkusarnir"okkar".

Við mikilvægar aðgerðir verða allir að vinna vel SAMAN og gera það.

Hvernig væri að hafa hálfa stjórnarandstöðuna til að reyna að "lækna, annast og sinna" sjúklingnum inni á skurðstofunni?

Þorgerður neitaði e.t.v. að sjá um svæfinguna, hún hefði löngu verið búin að sjá hvað þyrfti að gera við sjúklinginn.  Jóhanna mundaði hnífinn, tilbúin, skrúbbuð og sótthreinsuð. Valgerður héldi því fram að ekki ætti að fara að skera rétta sjúklinginn.  Ragnheiður neitaði að vera til fóta, það væri bara niðurlægjandi. Ágúst yrði flökurt og hlypi út. Álfheiður segði sjúklinginn vera svona illa farinn vegna aðgerða fyrra hjúkrunarteymis. Árni færi með tengur heim til að nota á grillið. Hinn Árninn segðist aldrei hafa séð "svona innyfli". Ásta bentir á heimskulega hjúkrun, hún kynni það nú best. Birkir vildi vera fremstur; hann hefði fundið upp sjúklinginn og allir væru þar með í vinnu hjá honum. Bjarni segðist eiga að sjá um þetta af því allir yrðu sætari í hvítum slopp (og ennþá sætari með grímu og hlífðargleraugu fyrir andliti). Björn vildi sitja í badmintondómarastól og horfa yfir völlinn. Þannig sæi hann hvort kalla þyrfti á sýklahernaðarvarnaröryggisstjórnarliðið. Einar þyldi kannski ekki blóð svo hann væri með svört gleraugu og gæti því ekkert gert. Eygló reyndi að stjórna með svo miklum gassagangi að ekki heyrðist í lífsmarkamælunum. Guðjón segði þetta tóma vitleysu, það væri ekki bröndu að fá í þessum kvið; hlyti að hafa brottkastast. Guðlaugur skæri sig óvart í puttann og yrði óvígur. Katrín færi út, segði hin fullfær, hún hefði nóg að gera annað, enda væri þröng á stofunni. Kristján segði að ekki væri skorið svona upp fyrir norðan. Pétur gæti ekki komið útúr sér góðum leiðbeiningum og ráðleggingum, þannig að ekkert gagn yrði að honum. Sigurður legðist í sótthreinsunarspírann og segði ekki meira af honum. Valgerður sæti við "sjúrnalinn" og bruggaði ráð til þess að koma yfirlækninum frá, t.d. með því að sprauta loftbólu í æð sjúklingsins. Steingrímur ætti erfitt með sig og fullt í fangi, þar sem hann væri í stöðu aðstoðarlæknis, aðstoðarsvæfingarlæknis og yfirhjúkrunarfræðings. Össur kveddi og gengi á fjöll til að hitta fjarskyldari frændgarð sinn.

Það er sama hvort einn sjúklingur eigi í hlut eða heil þjóð, MENN GETA EKKI LEYFT SÉR AÐ BREGÐA FÆTI FYRIR ÞÁ SEM EFTIR ATVIKUM ERU AÐ REYNA AÐ LÆKNA, HJÚKRA EÐA LÍKNA SJÚKLINGI, FJANDANS SAMA HVERJIR KUNNI AÐ VERA Í STJÓRN EÐA STJÓRNARANDSTÖÐU.

EKKI VEIT ÉG HVORT ÞAÐ FLOKKAST UNDIR ILLMENNSKU EÐA AFSPYRNU ÞRÚGANDI HEIMSKU.


Gullklumpur - - "FALIÐ VALD" - - Njótið með mér!!!

Bókin "Falið vald" hefur verið ófáanleg árum eða áratugum saman.

M.a.s. þær bækur sem skráðar eru "inni" á bókasafninu... finnast hvergi!! (reyndi oft)

Ég fór þess vegna að leita fyrir mér á netinu; hvort e-r kaflar væru e.t.v. til, útdrættir eða samantekt.  Áhuginn dró mig svona ákveðið af því að mér var SAGT! að lesa hana : )

Svo, eins og gamla fólkið segir stundum; "nema hvað". Eftir smá klifur í netinu fann ég það sem ég leitaði að, en trúði því varla > > > BÓKARóþekktin var í öllu sínu veldi á netinu!!!

Ef einhvern tíma hefur verið ástæða til að lesa þessa bók af ákefð, þá er það nauðsyn og skylda núna.

Hérna er bókin. Hún er rétt rúmlega 100 bls: 


370 fjárglæframenn handteknir á Suðurlandi

Eiga það sko skilið. Búnir að sukka í því að eignast húsnæði og kaupa sér vöfflujárn. Skulda milljarða og vilja svo fá skuldirnar niðurfelldar. Til háborinnar skammar fyrir þetta Suðurlandspakk.

Nær væri að leyfa litlu græðlingunum að kaupa sér græðandi krem til að bæta sáran skaðann af því að hafa þurft að hætta að lagfæra hlutabréfaverð og stofna nýja banka og -útibú til að borga skuldir hinna fyrri.

 

Hverjir eru bakarar og hverjir smiðir?


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrollvekja - - - dæmisaga

Kjörforeldrar mínir tóku af mér jörð sem ég átti. Ég mátti ekki einu sinni nota túnbleðil til beitar fyrir klárinn minn.

Þau nutu alls sem jörðin gaf af sér; seldu alla uppskeruna og heyið fyrir allgóðan pening.

Þau fjárfestu í ýmsum tólum, tækjum, rekstrarvörum og ýmsu efni. Þegar leið á voru þau búin að veðsetja allt sem þau höfðu til umráða og jörðina sem ég hafði alltaf átt, þótt ég hefði ekki mátt nota hana uppá síðkastið.

Þegar kom að skuldadögum þeirra lána sem veðin náðu yfir og þau áttu ekki orðið bót fyrir boruna á sér sögðu þau að eina leiðin til að bjarga eigninni og geta haldið áfram yrkja jörðina, væri að ÉG BORGAÐI af lánum og öllum öðrum skuldum?!?!?!

Engum dytti í hug að fara svona að í fiskveiðikvótakerfinu.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband