"Hraðinn í fólksfækkun á landinu færist í aukana"

(Vísir, 09. okt. 2009 11:18)

Þessi fréttamaður getur kannski bakkað afturábak, aftur fyrir sig, áfram.

???

Vinur minn, sem veit að ég er málfarsfasisti, sendi mér þessa fyrirsögn; hann þekkir mig. 

Stundum blöskrar manni meðferð íslenskunnar.  Við hljótum að gera kröfur um að fjölmiðlafólk sé sæmilega skrifandi.

Þetta er í raun endurtekin færsla, sú fyrri var klúðurslega upp sett.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hef tekið eftir að málfarið hjá þeim sem tala í útvarp, á öllum stöðvum nema rás 1, er miklu verra en í meðallagi hjá þjóðinni. Það hefur oft vakið spurningar um það eftir hverju sé farið þegar fólk er ráðið.

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 10.10.2009 kl. 13:09

2 Smámynd: Eygló

Ja-há, Húnbogi og ég er nú tröllslega pipruð að ég læt þetta fara rosalega í taugarnar á mér.

Stundum er eins og maður þurfi að kunna setningafræði ýmissa tungumála til þess eins að geta skilið meininguna í setningunni, sbr. fyrirsögnin sem ég gargaði hérna inn : )

Eygló, 11.10.2009 kl. 00:48

3 Smámynd: Baldur Hermannsson

1) Þetta mál er svo mikilvægt að við verðum að taka það algerum vettlingatökum. (Höskuldur Þórhallsson í pontu.

2) Róm var ekki brennd á hverjum degi. (bjartsýnismaður á landsbyggðinni í útvarpsviðtali)

3) Ef aflinn heldur áfram að glæðast eru blikur á lofti um að útgerðin nái að greiða niður skuldir sínar. (úr ónefndu dagblaði)

4) Steingrímur J. Sigfússon er alltaf flottur, hann þorir að segja það sem hann meinar og axlar sín skinn. (af ónefndu moggabloggi)

Baldur Hermannsson, 11.10.2009 kl. 02:48

4 identicon

Það þykir dyggð og merki um þroska að vanda sig á ýmsum sviðum. Við vinnu, að skila góðu handverki eða góðri þjónustu. Eiga vönduð húsgögn. Ganga í vönduðum fötum. Hitt og þetta vandað. Á vini sem hafa nánast þráhyggju fyrir vönduðu hinu og þessu EN tala síðan óvandaða illskiljanlega málblöndu. Af hverju ekki vanda sig við að tala og skrifa, eins og það er nú auðvelt. Mér finnst fólk eins og til dæmis Páll Óskar og Megas vera dæmi um fólk sem ætti að vera víti til að varast í málfari. Enda er málfarið hjá þeim til þess að ég lít niður á þá kumpána og finnst ég hafa efni á því.

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 11.10.2009 kl. 10:45

5 Smámynd: Björn Birgisson

4) "Í vondri stöðu axlar hann öll sín skinn og heldur ótrauður til vandasamra verka. Fyrirmyndarmaður."  Fara rétt með!

Björn Birgisson, 11.10.2009 kl. 17:30

6 Smámynd: Björn Birgisson

"Ég reikna alveg með því að sagnfræðingar framtíðarinnar muni líta Jóhönnu Sigurðardóttur sömu augum og Norðmenn líta á Vidkun Quisling." (af ónefndu Moggabloggi) - Mikil spádómsgáfa. Hvað með nútíma sagnfræðinga?  Hvað með hugarheim þess er svo ritar?

Björn Birgisson, 11.10.2009 kl. 17:39

7 identicon

BV, það er ekki annað hægt en að senda þér svona skemmtilegan texta: Fjórburar, fjórburar og svo tvíburar

Áströlsk kona, sem hefur eignast fjórbura í tvígang, eignaðist nýverið tvíbura. Konan, hin 31 árs gamla Dale Chalk, og Darren eiginmaður hennar eiga nú 11  börn sem eru öll yngri en sjö ára.

„Við vildum gjarnan eignast fleiri börn, en út frá læknislegu  sjónarmiðið þá er þetta orðið gott,“ sagði Darren í viðtali við Courier-Mail. „Við þyrftum að kaupa stærri rútu,“ sagði hann ennfremur.

Árið 2005 var Dale aftur ófrísk af fjórburum. Börnin fæddust í október það ár en þrjú þeirra lifðu af. (Vá, gott úrval hér þótt setningin sé stutt. Fjöldi barnanna væri ekki fréttaefni ef konan hefði fætt þau í október ári eftir að hún varð ófrísk af þeim, eða hvað? Börnin fæddust en þrjú lifðu. Það hefði verið viðeigandi að taka fram að eitt hefði látist. Yfirleitt er ekki tekið sérstaklega fram að þeir sem fæðist lifi, það er svona frekar gert ráð fyrir því.

Fyrstu fjórburarnir, tveir drengir og tvær stúlkur, fæddust í ágúst árið 2004. Þau munu byrja í skóla á næsta ári. Þá eiga hjónin sex ára gamla stúlku og aðra stúlku sem fæddist árið 2007.

Þau  eru sögð hafa gengist undir  frjósemismeðferð vegna  fjölburafæðinganna. (Er líklegt að þau hafi faríð ekki (ekki gengist undir) frjósemismeðferð vegna allra þessa fjölbura.

Og þá er það reikningurinn: Þau eignast tvisvar sinnum fjórbura og einu sinni tvíbura, samtals 11 börn eins og segir í fréttinni.

Einn fjórburinn lést.

Þau hafa nýlega eignast tvíbura.

Þau eiga 6 ára gamla dóttur.

Þau eiga 2ja ára gamla dóttur.

Samtals eru þetta 11 börn: einir fjórburar, einir þríburar, einir tvíburar, tvennir einburar.

Stutt frétt sem vakti ekki áhuga minn efnislega, en greip huga minn vegna málfjóla og sérkennilegrar framsetningar blaðamanns á því að útskýra af hverju 2+2 eru fjórir.

Díta (IP-tala skráð) 13.10.2009 kl. 02:57

8 Smámynd: Eygló

Þetta er frábært (kannski ekki á jákvæðu hliðina).

Þótt manni blöskri að lesa svona texta getur maður notið þess að hneykslast.

Takk kærlega, meira svona : )

Yfirbeturvitringur

Eygló, 13.10.2009 kl. 17:04

9 identicon

Díta (IP-tala skráð) 15.10.2009 kl. 00:51

10 identicon

Það er ekkert lát á málfjólum. Bretadrottning laumast í leikhús:

Aðstoðarmaður drottningarinnar segir í samtali við dagblaðið London Evening Standard að ferðir sem þessar, þar sem hjónin fari huldu höfði í leikhús, séu algengar.

Díta (IP-tala skráð) 16.10.2009 kl. 15:38

11 identicon

Meðal þess sem mér leiðist í málfari fólks er notkunin á orðinu að leigja. Eigandi íbúðar hann leigir hana og sá sem býr í henni hann leigir hana líka!!!. Þarna er hægt að lagfæra málið og nota orðið að leigja á sama hátt og að lána.

Vöndum okkur við að tala og skrifa, það kostar ekkert.

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 17.10.2009 kl. 00:16

12 Smámynd: Garún

Guð minn góður hvað mig langar að hitta þig Díta!  Þú ert svona snillingur.  En alveg svakalegt stundum að lesa fréttirnar!  Úff

Garún, 18.10.2009 kl. 21:44

13 Smámynd: Garún

Hey vinkona mín er eins og þú með gífurlegan áhuga á íslensku....þú ættir að verða bloggvinkona hennar...hún er með marjasig.blog.is 

Garún, 18.10.2009 kl. 21:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband