Fleiri forvitnileg nöfn núlifandi Íslendinga ( II )

Eyjalín Hafalda   Húmdís 
Fannlaug  Hagalín   Húni 
Feldís Hagbarður  Indlaug 
Fífa  Hagbarður  Indríður 
Filippa  Haki   Ingiber 
Fjóla Egedía  Hákonía   Ingimagn
Fjólmundur Hallgunnur  Ingólfína
Fönn  Hárlaugur  Írunn 
Forni  Hauður   Ísalína
Fregn  Heiðar Feykir  Ísalína 
Freygarður  Heiðdal   Ísar Logi 
Freyja Eilíf Heiðlindur  Íshildur 
Friðlín  Heiður Hörn  Íslaug 
Friðmey Barkar Hella  Íunn 
Álfur Helma   Íva 
Friðsemd  Hergill   Ívar Hlújárn 
Fróðný  Herleifur   Jarmila
Funi  Hermanda  Járnbrá 
Fura Ösp  Hermanníus Járngerður 
Gæflaug  Hersilía  Jóakim 
Garður  Hersveinn Jómar 
Garibaldi  Hervar   Jón Jarl 
Gefn  Hervör Hólmjárn Dómhildur 
Geirtryggur  Hildimundur  Jörína 
Gestný Hildisif   Jórmundur 
Gígja Ísis  Híramía   Jörn 
Gíslný  Hjörtfríður  Jósavin 
Gíslunn  Hjörtína   Júníana 
Glóð Hjörtrós   Jústa 
Glódís Tara Hjörtþór   Jútta 
Gnúpur  Hneta Rós  Kamma 
Gnýr  Hnikarr  Kára 
Gotta  Holger   Karissa 
Gottsveinn  Hólmbjörg  Karlý
Grímheiður  Hólmgrímur  Katarínus 
Grímhildur  Hólmþór   Katla Lóa
Grímúlfur  Holti  Klementína
Guðbjarni Hraundís   Kolviður 
Guðlín  Muninn   Garibaldi
Guðráður  Hreindís Ylva  Kort 
Guðröður  Hróar   Kraki
Guðsteina Húbert Nói  Ermenrekur
Guðveigur    Hugljúf   Kristóbert 
Gunnvant  Hugo   Kýrunnur 
Gyðríður  Hulddís   Lárentsínus 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég þekki mann sem er Fornason, á þessum lista eru fleiri nöfn sem ég kannast við en á þeim fyrsta. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 17.9.2009 kl. 01:46

2 Smámynd: Björn Birgisson

Takk fyrir þetta! Ermenrekur! Það sem fólki getur dottið í hug!

Björn Birgisson, 17.9.2009 kl. 09:24

3 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Já það eru ýmisleg undarleg "nöfn" sem fólki dettur í hug að setja á börnin sín

Ragnhildur Jónsdóttir, 17.9.2009 kl. 16:07

4 Smámynd: Fannar frá Rifi

Húni er nú gamalt nafn og mjög íslenskt. minnir að það sé komið af Húnum, eins t.d. Atli Húna konungur. 

Fannar frá Rifi, 17.9.2009 kl. 17:58

5 Smámynd: Eygló

Fannar, já það eru ýmis nöfn sem sumir þekkja. Allt eru þetta nöfn á Íslendingum. Sum eru einmitt það gömul (nöfnin, ekki fólkið) að þau koma manni ókunnuglega fyrir sjónir.

Mér finnst Húni t.d. mjög flott nafn.

Eygló, 17.9.2009 kl. 18:41

6 Smámynd: Kama Sutra

Ja hérna.  Margt er skrýtið í kýrhausnum!  Kýrunnur!

Reyndar fletti ég að gamni mínu nafninu Kýrunnur upp í Íslendingabók - þetta nafn finnst ekki þar.

Er ekki einhver að djóka með okkur hérna?

Kama Sutra, 18.9.2009 kl. 03:40

7 Smámynd: Eygló

Þetta er beint úr viðskiptaskrá fyrirtækis hér í bæ : )   ?

Eygló, 18.9.2009 kl. 15:17

8 Smámynd: Eygló

"

 
Ein kona var skráð með þessu nafni í þjóðskrá 1989. ->Kýrunn
"
(snara)

Eygló, 18.9.2009 kl. 15:19

9 Smámynd: Garún

Án þess að vilja vera dónaleg og mun ég reyna að hafa þessa færslu nærgætna en ........HNETA RÓS?????    Eruð þið að grínast eða?

Garún, 23.9.2009 kl. 09:31

10 Smámynd: Eygló

Nei, nei, finnur hana í þjóðskrá/símaskrá :)   Þetta venst : )

Eygló, 23.9.2009 kl. 21:04

11 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Hahahaha skemmtilegar pælingar :)

Einar Örn Einarsson, 24.9.2009 kl. 07:57

12 Smámynd: Finnur Bárðarson

Svo er maður að dröslast með sitt vesældarlega nafn þegar t.d. Guðvant er í boði.

Finnur Bárðarson, 2.10.2009 kl. 16:23

13 Smámynd: Eygló

Ekki væri okkur Guðs vant...

Eygló, 3.10.2009 kl. 02:47

14 Smámynd: Gísli Gíslason

Fróðlegt. Tók saman lista yfir ónotuð ísl nöfn, sjá http://www.foreldrajafnretti.is/FileLib/skjalasafn/sjaldg%C3%A6f%20n%C3%B6fn.doc

Gísli Gíslason, 3.11.2009 kl. 13:47

15 Smámynd: Eygló

Gísli, þetta var gaman, takk fyrir (fór beint og renndi yfir)

Fatta ekki strax hvort ég geti "sorterað" þetta t.d. eftir ártali; sumt er svo andsk. gamalt og fólk datt allur ósóminn í þá, eins og nú.

Ég vann einu sinni hjá stofnun sem vann úr kirkjubókum og alls kyns gögnum (hvað ætli Persónuvernd segði nú) einkunnir, geðsjúkdómar, skyldleikahjónabönd, ættir raktar....

Þegar mér var nóg boðið fór ég að skrifa hjá mér.  Núna í "seinni röðinni" (reyndar bara komin ein færsla) eru nöfn viðskiptavina fyrirtækis nokkurs hér í bæ, þannig að þetta eru nöfn "lifandi fólks" :)

Ég hef svolítið leitað í Íslendingabók og skil ekki af hverju ég finn ekki fólk sem ég VEIT að var/er til. T.d. er Hneta Rós ekki í Íslb. en hún er í símaskrá. Lofthæna var fædd um miðja 20.öld, fann hana ekki í Íslb.

Kannski ekki öll "kurl" komin til grafar

Eygló, 3.11.2009 kl. 18:57

16 Smámynd: Eygló

... að ógleymdri Kýrunni sem ég fann á snara.is  Var enn á lífi 1989

Eygló, 3.11.2009 kl. 19:01

17 Smámynd: Gísli Gíslason

Það er verðugt verkefni að fara í gegnum ónotuð eða lítið notuð ísl nöfn.  Nafn getur verið einkenni ættar.  Ég átti ömmu sem hét Eyleif og á dóttir með því nafni.  Sjaldgæft nafn sem ég er ákaflega stoltur af. 

Gísli Gíslason, 9.11.2009 kl. 13:21

18 Smámynd: Eygló

Mörg gullfalleg þessi gömlu nöfn, - og frískleg innan um þessi "dúllunöfn" sem hafa verið í tísku.

Svo verðum við að gæta þess að það sem við "þýðum" af gömlum nöfnum, eins og öðrum orðum, þýðum við líklega eins og við skiljum það (Nú á tímum). Þetta gæti hafa/getur þýtt upphaflega eitthvað allt annað og fallegra en við höldum... þegar við sjáum sum LJÓT nöfn.

Eygló, 9.11.2009 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband