Færsluflokkur: Spaugilegt
4.11.2009 | 13:01
Hefði næstum frekar viljað OUTLET !
Fékk senda auglýsingu sem ég hreint verð að afrita hérna. Hef enga ástæðu til að fela nafn auglýsanda þar sem hann birtir þessa gullaldarmálsauglýsingu opinberlega. Varla auglýsing annars. Þar að auki fær fyrirtækið fyrirtaksauglýsingu með þessu tiltæki mínu.
Breitt og breytt letur eru nokkurs konar hnegg frá mér. Breyti samt ekki stafkróki.
Mér þykir einstaklega gaman að nöldra. Ekki eins og Bubbi syngur "Mig kennir til"
______________________________________________________________
Tilboð
10 tíma kort frá 6.900,-
Stakur tími aðeins 790,-
Helgartilboð stakur tími á 500,-
"Shitload" af kremum
Sohosól Grensásvegi 16
Opið frá 11:00 - 23:00 virka daga
Helgar frá 13:00 - 22:00 p.s. ef við erum ekki á djamminu!
Sími 578-4747
SOHOSÓL Nýjar perur!
Nýjir eigendur
Nýtt staff
Nýjar áherslur
25.10.2009 | 01:09
Gegn kreppuþyngslum
Spaugilegt | Breytt 24.10.2009 kl. 11:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.10.2009 | 02:35
Engin alvara í þessu bloggi
Vinnandi fólk spyr oft lífeyrisþega hvernig þeir fái eiginlega tíman til að líða?
Gott og vel, um daginn fórum við hjónin í bæinn og komum við í verslun.
Við vorum þar í fimm mínútur og þegar við komum út var lögregluþjónn að skrifastöðumælasekt.
Við fórum til hans og sögðum: Heyrðu, hvernig væri að sýna svolitla tillitssemi og gefa ellilífeyrisþegum eitt tækifæri?
Hann lét sem hann sæi okkur ekki og hélt áfram að skrifa sektina.
Þá kallaði ég hann nazista-svín. Hann starði á mig og fór að skrifa annan sektarmiða, nú vegna slitinna hjólbarða.
Þá kallaði konan mín hann drullupung. - Hann kláraði að skrifa miða númer tvö og setti undir rúðuþurrkuna hjá þeim fyrri.
Þá fór hann að skrifa þriðja sektarmiðann. Þetta hélt áfram í um 20 mínútur og því meira sem við móðguðum hann þeim mun fleiri sektarmiða skrifaði hann.
Prívat og persónulega var okkur nákvæmlega sama. Við áttum ekki þennan bíl. Við komum nefnilega með strætó.
Á hverjum degi reynum við bara að skemmta okkur svolítið; við erum þó ellilífeyrisþegar.
Og það er nauðsynlegt að halda húmornum á þessum aldri.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 03:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
15.9.2009 | 03:45
Kexruglaðir Bretar
Herra minn trúr, hvaða ólyfjan hafa þeir nú sett í kex. Börn og fólk á öllum aldrei nýtur þess að maula kex.
Svo er talað um "hættulegasta" kexið og það þurfti endilega að vera það sem mér finnst með því besta...
... svo skellti ég upp úr ! ! !
Hafið þið oft brennt ykkur við að troða kexi (eða öðru) í bolla með brennheitum vökva?
Er mikið um að þið rekið kexkökur upp í augun á ykkur? Sennilega MJÖG nærsýnir þeir.
Guði sé laun fyrir svona fréttir ekki veitir af.
500 á sjúkrahús vegna kexáts | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.9.2009 | 00:48
MANNANÖFN sem hljóma ókunnuglega í eyrum (hvar annars staðar?) ( I )
Fyrir alllöngu birti ég góða runu mannanafna. Mér þóttu þau sérkennileg og sum allt að því ljót.
Sá listi náði aftur á 19.öld og mörg nafnanna ekki notuð lengur.
Nú sendi vinur mér nýjan lista; lista yfir núlifandi fólk. Þess vegna eru þarna mörg nöfn sem sumum þykir bara "venjuleg"
Birting þessara nafna eru ekki á neinn ætluð til að gera lítið úr eigendum þeirra, heldur vegna þess að þau eru forvitnileg og mörg sem koma manni algerlega á óvart; vissi ekki að þau væru til.
Abelína | Bótólfur | |
Aðalfríður | Brimdís | |
Addbjörg | Brimhildur | |
Ædís | Bryngeir | |
Æsa | Burkni Reyr | |
Æsgerður | Dagmey | |
Æska | Dagnýr | |
Agga | Daldís Ýr | |
Alex Álfþór | Danival | |
Alfífa | Dína | |
Alida | Dolinda | |
Alla Berta | Dómald | |
Alvilda | Draupnir | |
Ámundínus | Dúi | |
Ananías | Dvalinn | |
Annas | Dýrley | |
Annika | Dýrmundur | |
Ármey | Dýrólína | |
Ármey | Eðalrein | |
Arna Viðey | Edilon Hellertsson | |
Árninna | Eðna | |
Árnmar | Eggþóra | |
Arnviður Ævarr | Egilína | |
Árþóra | Eilífur Örn | |
Ásólfur | Einfríður | |
Ásólfur | Einfríður | |
Ásta Sóllilja | Einína | |
Aþena Mjöll | Eirný Þöll | |
Auðlín | Elbergur | |
Auðna Hödd | Eldur | |
Auðrún | Elentínus | |
Auðunn Skúta | Elíeser | |
Baldína Hilda | Elínbjört | |
Baldrún Kolfinna | Elinór | |
Baltasar Breki | Ellisif | |
Baugur | Elspa | |
Beitir | Engiljón | |
Benney | Engilráð | |
Bergkvist | Erlar | |
Berglín | Erlendsína | |
Betúel Betúelsson | Erlín | |
Bjarmi | Erlín | |
Bjarnína | Ermenga | |
Bjartur Logi | Esjar | |
Blædís Dögg | Ester Úranía | |
Blængur Blængsson | Estiva | |
Böðvína | Euphemía (Efemía hjá X) | |
Borga | Evlalia |
Áfram með stafrófið næst : )
3.9.2009 | 10:26
Aðalshestur
Ég veit ekki með ykkur en svona nokkuð gleður mitt hrellda hjarta
Spaugilegt | Breytt 4.9.2009 kl. 22:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
7.8.2009 | 02:23
Við erum orðin einum um of gegnsósa, a.m.k. ég
Hjartað tók kipp... Hvað er NÚ!!? ... VARAÐ VIÐ hverju? Vöxtum. Gat verið. Nýbúið að hækka fjármagnstekjur uppí 15%. Hvað með unga fólkið með börnin sín og heimilin?
Mér létti stórum þegar IceKreppu slikjan var farin af lesfærum mínum og ég sá loksins að verið var að vara við miklum vatnavöxtum. Það er svo sem ekkert grín en ekki eins margir í hættu.
Varað við vatnavöxtum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.7.2009 | 04:21
HVORKI UM ** &$#!=)? ** NÉ UM ** &%$#!=?@
x
Að verða fótaskortur á tungunni
. Allt fór afsíðis sem gat farið afsíðis.....
· Þessi peysa er mjög lauslát.....
· Þau eiga þvílíka myllu, lifa eins og greifingjar og leika á alls eggi....
· Hann sló tvær flugur í sama höfuðið.......
. ...þarna hefði ég sko viljað vera dauð fluga á vegg......
· Ég sá svo sæta stelpu að ég fór alveg fram hjá mér.....
· Ég var svo þreyttur að ég henti mér undir rúm......
· Hann sat bara eftir með súrt eplið.....
· Og, nú, góðir farþegar, er einmitt fengitími melóna.....
· Ég hreinlega vissi ekki í hvorn fótinn ég ætti að setjast....
· Hann barasta kom eins og skrattinn úr heiðskíru lofti....
· Þar stóð hundurinn í kúnni...
· Maður fer í bæinn til að sjá sig og sýna aðra...
· Svo handflettir maður rjúpurnar...
· Já, fólk núorðið er svo loðið á milli lappanna.....
· Þetta er ekki upp í köttinn á Nesi.
· Betur sjá eyru en auga
· Ég er alveg stein vöknuð!
· Það er ég sem ríð rækjum hér (að ráða ríkjum)
· Ég er búinn að vera andvana í alla nótt
· Róm var ekki reist á hverjum degi!
· Vinsamlegast beinhreinsið vínberin
· Lærin lengjast sem lifa (svo lengi lærir sem lifir)
. Hann varð að setja í minni pokann fyrir hinum
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 04:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
8.7.2009 | 00:41
Að vísu ekki dýrt kveðið en örlítið heilandi? "Nágranninn"
6/7/2009
2007 Ég á minnsta húsið í götunni,
húsið sem stendur hjá Lödunni.
Þegar granninn rennir í pottinn hjá sér-
kólna allir ofnarnir hjá mér.
Eftir að granninn gerði upp garðinn hjá sér
skín ekki sólin lengur í garðinn hjá mér.
Granninn fær ráðherrana í grillið til sín
og bræluna leggur svo yfir til mín.
Granninn á jeppa af flottustu sort,
en ég á bara ljóta Lödu Sport.
Ég fer í vinnuna með rútunni,
en hann með einkaþyrlunni.
2008
Konan hans eldist ekki hætings hót,
en mín er alltaf bæði feit og ljót.
Granninn er stæltur og með hárið ljóst,
En ég er bæði með ístru og lafandi brjóst.
Þegar granninn er með veislu hjá sér,
býður hann öllum, öllum - nema mér.
Elton John skemmti lýðnum í afmælinu,
en ég hafði bara efni á Breiðbandinu.
Óþolandi er oft, vel stæði granninn minn,
Það trúa því fáir, að hann sé sonur minn.
2009
Nú er hann kominn á heimilið mitt
og fluttur í gamla herbergið sitt.
Í kreppunni hann missti allt sitt fé.
Og nú á hann minni pening en ég.
Það kviknaði í báðum jeppunum,
og konan er farin frá honum.
Nú hangir hann heima rosa down,
og bölvar og ragnar Gordon Brown.
Höf. óþekktur