Færsluflokkur: Menning og listir

RIGNING

Þetta er mjög stutt.  Ótrúlega flott (þykir mér : )


Skugga-Sveinn við slaghörpuna

Fór á sýningu Leikfélags Kópavogs, Skugga-Svein, í nýju aðstöðunni þeirra sem mig minnir að heiti einfaldlega; "Leikhúsið".

Annað hvort er Matthías Jochumson búinn að snúa sér marga hringi í gröfinni eða þá að hann er í banastuði núna. Hvort tveggja er nú reyndar mikið stuð.

Ótrúlega fjölhæfir leikarar komu manni skemmtilega á óvart, og það meira og minna út alla sýninguna.  A.m.k. tveir spiluðu á píanó, svo kom fiðla við sögu, trommur og flauta (minnir mig?)

Nei, Skugga-Sveinn sjálfur var ekki með rollugæru á bakinu, eins og ég man eftir þegar ég sá þetta e-n tíma á síðustu öld.

Allt í lagi:  Þetta er ekki líkt neinu, ekki einu sinni Útlögunum/Skugga-Sveini, nema söguþráðurinn er byggður á skáldverki Matthíasar.

Ungt fólk, unglingar og ungir í anda, hefðu sannarlega gaman að þessu stykki.

Ekki fælir verðið frá. Veit reyndar ekki hvort eitthvert tilboð var, en miðinn kostaði þúsund kall = segi og skrifa 1000 krónur


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband