Íslendingar trúa á jólasveininn

Þessu slær Lars Peder Brekk, norski landbúnaðarráðherra fram í viðtali við norska Aftenposten. Þarna líkir hann trú okkar á "sérafgreiðslu" inn í ESB við jólasveinatrúna:

Hann álítur litlar líkur á að ESB samþykki ýmsar sérkröfur um fisk.

"Landbruksminister Lars Peder Brekk sier Island tror på julenissen

dersom de tror på varige særordninger i EU for fisk"

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ísland er jú þekkt sem hjátrúarfyllsta land heims.... auðvitað nefnir hann jólasvein þegar hann talar um okkur.

DoctorE (IP-tala skráð) 2.8.2009 kl. 01:44

2 Smámynd: Eygló

... og nú eru yfirjólasveinarnir (eða kannski frekar Leppalúðarnir) búnir að drita yfir okkur, krúttlegu jólasveinana, sem föttum aldrei neitt fyrr en eftirá - þ.e. löngu eftir jól.

Eygló, 2.8.2009 kl. 02:03

3 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég er jólasveinn, ég trúi á sjálfa mig

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 2.8.2009 kl. 02:27

4 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Eftir því sem ég heyri meira viðhorfi Evrópu og Norðurlandanna til okkar Íslendinga verð ég minna og minna hrifin af vist okkar innan ESB!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 2.8.2009 kl. 11:24

5 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Tek undir þetta sem Jóna Kolbrún segir. Doctor E, gott að sjá að það er ekki alveg búið að drepa í þér eftir lokunina.

Rut Sumarliðadóttir, 3.8.2009 kl. 12:11

6 Smámynd: Eygló

Það kemst ekki úr hausnum á mér, það sem (man ekki nafnið, en mig minnir Spánverji) hann sagði í fréttunum, - að það væri nú aldeilis fínt að fá Íslendinga í bandalagið, þeir byggju yfir miklum fiskimiðum og færu þeir "inn" kæmist ESB og ríki þess, að Norðurskautinu (en þar er gert ráð fyrir olíu, gasi og fleira góðgæti)

"Bjóðum honum í partý, hann á alltaf nóg brennivín"  eða þannig.

Eygló, 3.8.2009 kl. 12:50

7 Smámynd: Björn Birgisson

Jólasveinar hafa stjórnað þessu landi um nokurra áratuga skeið. Nú hafa Leppalúði og Grýla tekið öll völd. Þeir sem ekki borga verða settir í poka, sem sökkt verður í ...................

Björn Birgisson, 3.8.2009 kl. 23:19

8 Smámynd: Eygló

... og það sem verra er við fáum ekki einu sinni kartöflu í skóinn þótt við séum þæg.  Og verðum étin hvort sem við erum þæg eða óþæg.

Eygló, 4.8.2009 kl. 01:27

9 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Svonasvona, sá norski er bara að segja það sem við vitum öll og ég skammast mín bara ekkert fyrir að trúa á jólasveininn. Hann er svo sannarlega til og gaf mér til dæmis eldspýtnastauk og urmul af músík síðast!Lopez hét sá spænski minnir mig og sagði ekkert ljótt við hann Króa í viðtalinu!

Magnús Geir Guðmundsson, 4.8.2009 kl. 22:38

10 Smámynd: Eygló

Magnús Geir, ertu farinn að blogga/skrifa EFTIR að þú ferð að sofa? Allt í lagi sko :9  Gleðileg jól!

Low pez

Eygló, 5.8.2009 kl. 00:55

11 Smámynd: Himmalingur

Trú okkar á jólasveina nær yfir gröf og dauða: Við kjósum þá aftur og aftur!!!

Himmalingur, 7.8.2009 kl. 01:02

12 Smámynd: Eygló

satt segirðu Hilmar. Nú fer bara að vandast málið vegna Grýlu og Leppalúða.  Ætli þessi hópur sé kassavanur?

Eygló, 7.8.2009 kl. 01:48

13 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

heh....já mikil er trú okkar

Hólmdís Hjartardóttir, 10.8.2009 kl. 09:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband