Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
3.7.2010 | 15:46
Beita stjórnvöld mig ofbeldi? - svo heyri ég sagt
(...gengistryggðu lánin)
Ég geri mér enga grein fyrir því að verið sé að fara illa með mig. Kannski kemur að því, án þess að ég geri mér grein fyrir því núna.
Jafn vitlaus og ég var, að vera með gengistryggt lán, er ég vitlaus að skilja ekki að nú sé verið að grafa undan lífsviðurværi mínu með því að Hæstiréttur dæmi slíka viðmiðun ólögmæta.
Það sem olli andlegum þyngslum og hjartaöng; gífurlegt fall íslensku krónunnar, sem líkamnaðist í óyfirstíganlegum hækkunum á lánum tengdum öðrum gjaldmiðlum.
Ólík vaxtakjör í ýmsum löndum; (oftast) miklu lægri lánavextir en hér, voru forsendur þess að lánin, sem við héldum erlend, voru mun lægri vextir. Heyri oftast töluna 3%.
Auðvitað voru lánin ekki BÆÐI gengistryggð OG verðtryggð. Verðtryggt lán sem ég fékk, ber rúmlega 5% vexti (AUK verðtryggingar; FFVT). Óverðtryggð lán bundust vöxtum eins og þeir voru á hverjum tíma (8-23%)
Nú þegar forsendum fyrir þessum óvenjulega lágu vöxtum (hér á landi!) er kippt út; tengingu við "myntkörfu" , hvernig get ég ætlast til þess að halda þessum 3% vöxtum á láninu?
Yrði verðtrygging lána felld með Hæstaréttardómi, á ég þá að fá að halda áfram að borga þessi 5,1% eins og áður? Hvað ætla þá þeir sem voru hvorki með gengis- né verðtryggð lán að heimta? Verða þeir eftir sem áður að borga viðmiðunarvexti Seðlabankans? Eða bara, aþþí bara?
Geti einhver skýrt út fyrir mér að afleiðing dómsins sé þvílíkt ofbeldi gegn mér, þætti mér vænt um að fá rökstuddar skýringar. Þá get ég loksins farið að hata einhvern
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 15:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.11.2009 | 13:07
Toppstöðin - virðingarvert framtak
Hlekkur á Toppstöðina
Fréttablaðið, 25. jún. 2009
Frumkvöðlarnir verða í Toppstöðinni
Borgarráð hefur samþykkt að heimila rekstur frumkvöðlaseturs í svokallaðri Toppstöð í Elliðaárdal.
Hugmyndin felst í því að skapa hönnuðum, arktitektum og iðnaðarmönnum sameiginlegan vettvang til að skapa nýjar vörur, þekkingu og hugvit í afmörkuðu rými varaflstöðvarinnar," segir í greinagerð með tillögu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra. Semja á við áhugahóp um nýtingu Toppstöðvarinnar og sagt koma til greina að hleypa fleirum inn í húsið.
Tveir fyrrverandi borgarstjórar ítrekuðu í borgarráði að rífa ætti bygginguna.
Ég hef verið og er enn þeirrar skoðunar að rífa eigi Toppstöðina eins og ávallt hefur staðið til, enda húsið lýti í umhverfinu," segir í bókun Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar og tekið er í svipaðan streng í bókun Ólafs F. Magnússonar:
Ég hvet eindregið til þess að Toppstöðin í Elliðaárdal verði rifin þegar í stað, í fyrsta lagi sem hluti verndunarstefnu gagnvart Elliðaánum í öðru lagi sem hluti atvinnuskapandi verkefnis með skýra framtíðarsýn í þágu komandi kynslóða að leiðarljósi."
Þorleifur Gunnlaugsson, borgarráðsfulltrúi vinstri grænna, sat hjá við atkvæðagreiðsluna. Þorleifur segir nauðsynlegt að rífa húsið en að það verði borginni mjög dýrt á erfiðum tímum. Borgarráðsfulltrúi VG telur því skynsamlegt að leyfa starfsemi í húsinu um tíma en það verður jafnframt að vera tryggt að sú starfsemi hamli ekki niðurrifi hússins þegar betur árar." - gar
/leturbreytingar eru mínar/ey/
Vinir og fjölskylda | Breytt 19.12.2009 kl. 21:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
16.9.2009 | 22:59
Fleiri forvitnileg nöfn núlifandi Íslendinga ( II )
Eyjalín | Hafalda | Húmdís | |||
Fannlaug | Hagalín | Húni | |||
Feldís | Hagbarður | Indlaug | |||
Fífa | Hagbarður | Indríður | |||
Filippa | Haki | Ingiber | |||
Fjóla Egedía | Hákonía | Ingimagn | |||
Fjólmundur | Hallgunnur | Ingólfína | |||
Fönn | Hárlaugur | Írunn | |||
Forni | Hauður | Ísalína | |||
Fregn | Heiðar Feykir | Ísalína | |||
Freygarður | Heiðdal | Ísar Logi | |||
Freyja Eilíf | Heiðlindur | Íshildur | |||
Friðlín | Heiður Hörn | Íslaug | |||
Friðmey Barkar | Hella | Íunn | |||
Álfur | Helma | Íva | |||
Friðsemd | Hergill | Ívar Hlújárn | |||
Fróðný | Herleifur | Jarmila | |||
Funi | Hermanda | Járnbrá | |||
Fura Ösp | Hermanníus | Járngerður | |||
Gæflaug | Hersilía | Jóakim | |||
Garður | Hersveinn | Jómar | |||
Garibaldi | Hervar | Jón Jarl | |||
Gefn | Hervör Hólmjárn | Dómhildur | |||
Geirtryggur | Hildimundur | Jörína | |||
Gestný | Hildisif | Jórmundur | |||
Gígja Ísis | Híramía | Jörn | |||
Gíslný | Hjörtfríður | Jósavin | |||
Gíslunn | Hjörtína | Júníana | |||
Glóð | Hjörtrós | Jústa | |||
Glódís Tara | Hjörtþór | Jútta | |||
Gnúpur | Hneta Rós | Kamma | |||
Gnýr | Hnikarr | Kára | |||
Gotta | Holger | Karissa | |||
Gottsveinn | Hólmbjörg | Karlý | |||
Grímheiður | Hólmgrímur | Katarínus | |||
Grímhildur | Hólmþór | Katla Lóa | |||
Grímúlfur | Holti | Klementína | |||
Guðbjarni | Hraundís | Kolviður | |||
Guðlín | Muninn | Garibaldi | |||
Guðráður | Hreindís Ylva | Kort | |||
Guðröður | Hróar | Kraki | |||
Guðsteina | Húbert Nói | Ermenrekur | |||
Guðveigur | Hugljúf | Kristóbert | |||
Gunnvant | Hugo | Kýrunnur | |||
Gyðríður | Hulddís | Lárentsínus |
11.9.2009 | 00:48
MANNANÖFN sem hljóma ókunnuglega í eyrum (hvar annars staðar?) ( I )
Fyrir alllöngu birti ég góða runu mannanafna. Mér þóttu þau sérkennileg og sum allt að því ljót.
Sá listi náði aftur á 19.öld og mörg nafnanna ekki notuð lengur.
Nú sendi vinur mér nýjan lista; lista yfir núlifandi fólk. Þess vegna eru þarna mörg nöfn sem sumum þykir bara "venjuleg"
Birting þessara nafna eru ekki á neinn ætluð til að gera lítið úr eigendum þeirra, heldur vegna þess að þau eru forvitnileg og mörg sem koma manni algerlega á óvart; vissi ekki að þau væru til.
Abelína | Bótólfur | |
Aðalfríður | Brimdís | |
Addbjörg | Brimhildur | |
Ædís | Bryngeir | |
Æsa | Burkni Reyr | |
Æsgerður | Dagmey | |
Æska | Dagnýr | |
Agga | Daldís Ýr | |
Alex Álfþór | Danival | |
Alfífa | Dína | |
Alida | Dolinda | |
Alla Berta | Dómald | |
Alvilda | Draupnir | |
Ámundínus | Dúi | |
Ananías | Dvalinn | |
Annas | Dýrley | |
Annika | Dýrmundur | |
Ármey | Dýrólína | |
Ármey | Eðalrein | |
Arna Viðey | Edilon Hellertsson | |
Árninna | Eðna | |
Árnmar | Eggþóra | |
Arnviður Ævarr | Egilína | |
Árþóra | Eilífur Örn | |
Ásólfur | Einfríður | |
Ásólfur | Einfríður | |
Ásta Sóllilja | Einína | |
Aþena Mjöll | Eirný Þöll | |
Auðlín | Elbergur | |
Auðna Hödd | Eldur | |
Auðrún | Elentínus | |
Auðunn Skúta | Elíeser | |
Baldína Hilda | Elínbjört | |
Baldrún Kolfinna | Elinór | |
Baltasar Breki | Ellisif | |
Baugur | Elspa | |
Beitir | Engiljón | |
Benney | Engilráð | |
Bergkvist | Erlar | |
Berglín | Erlendsína | |
Betúel Betúelsson | Erlín | |
Bjarmi | Erlín | |
Bjarnína | Ermenga | |
Bjartur Logi | Esjar | |
Blædís Dögg | Ester Úranía | |
Blængur Blængsson | Estiva | |
Böðvína | Euphemía (Efemía hjá X) | |
Borga | Evlalia |
Áfram með stafrófið næst : )
8.9.2009 | 00:33
Lyklabörn lánastofnana
Bloggin mín eru rýr. Kem ekki með gáfulegar hugmyndir. Get ekki gargað á skjáinn; forsmáð forkólfa; kallað þá fávita, landráðamenn eða myrkrahöfðingja. Veit ekki hverjir eiga það skilið.
Fer hamförum í að skrifa í athugasemdir hjá öðrum. Þykist þá hafa vit að umræðuefninu. Færslan og gestir hafa undirbúið mig. Þetta var persónuleg játning getuleysi.
Þá kemur vangaveltan:
Langt er síðan; hátt í ár. Hvaða ríkisstjórn þá? Man það ekki. Geir og Ingibjörg? Jóhanna og Steingrímur?
Allt var á hverfanda hveli og séð frammá að ekkert lagaðist í bráð. Sýnt var að fólk, upp til hópa, gæti ekki staðið í skilum með afborganir af skuldum sínum. Íbúðaverð lækkaði og það sem jafn slæmt var, íbúðir seldust ekki. Verðbólgan hjó í rauneign íbúðaeigenda. En þetta vita nú allir.
Þess vegna gladdist ég sannarlega þegar staðhæft var að enginn þyrfti að yfirgefa heimili sín. Þeir áttu í versta falli að fá að leigja íbúðirnar "sínar".
Hvílíkur léttir. Að auk þess að missa eign sína, myndi fólk ekki missa heimili sín, börnin þyrftu ekki að yfirgefa heimili sitt, skóla, vini og umhverfi.
Getur einhver frætt mig á því, ef þetta er munað rétt, hvers vegna fólk er þá allt að því dregið af heimilum sínum, og nauðungaruppboðaauglýsingar fylla heilu og hálfu dagblaðasíðurnar?
Ég þekki til svo margra sem gætu lent í þessu. Auk allra þeirra sem þegar hafa lent í þessum hörmungum eða gætu átt þetta yfir höfði sér. Þetta fólk þekki ekki en vil engum svona illt.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 00:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
12.7.2009 | 01:39
Að ærast með stæl. Norðmaður gekk berserksgang.
mbl.is | 05.10.2006 |
Rústaði hyttunni í reiði sinni (innskot: hyttuna)
Rúmlega fimmtugur maður í Bærum í Noregi varð svo reiður þegar bankinn hans leysti til sín sumarbústaðinn hans að hann gekk berserksgang í bústaðnum og lagði innanstokksmuni alla í rúst. Bankinn, DnB NOR, hafði krafist þess að bústaðurinn, eða hyttan, yrði seld og höfðu tveir dómar gengið bankanum í hag í deilu um eignarhald á bústaðnum. Eftir að Bærum-manninum hafði verið tilkynnt um úrskurðinn hóf hann að vinna skemmdarverk sín. Hann sagaði gat á þakið og hellti steinsteypu yfir rafmagnstöfluna og í öll niðurföll.Þá reif hann baðherbergið og eldhúsið í tætlur, fjarlægði arininn og dreifði steypu og olíu um allt. Einnig lét hann vatn renna innandyra og bar á veggina efni sem geta gert að verkum að framvegis verði bústaðurinn óíbúðarhæfur.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 01:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
1.7.2009 | 13:18
Reykjavík 1926 ("Reykjavik, Capitol Of Iceland, 1926")
Leiðrétting: Óskar Þorkelsson bloggvinur reddaði þessu, hér er myndskeiðið. Fyrri texti: Reyndi fimm sinnum að koma þessu inní "YouTube" kerfið en fékk alltaf villuboð. Myndbandið er hinsvegar svo skemmtilegt, áhugavert og fræðandi, að ég set þá bara hérna inn slóðina. Þá opnar bara hver sem hefur áhuga.
1926: Flottur karl í flókaskóm; Einar Finnsson.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 18:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
25.6.2009 | 03:49
Húsbrot og nauðungaruppboð
Með þessum vangaveltum er ég ekki að lýsa vanþóknun minni á yfirvöldum eða bankastofnunum. Frekar hvort samvinna þeirra á milli sé virk. Voru það yfirlýsingar án samkomulags við fjármálastofnanir...
- AÐ ENGIR SKYLDU ÞURFA AÐ YFIRGEFA HEIMILI SÍN þótt áhvílandi skuldir færu yfir veðheimildir, já, og færu yfir verðmæti húseignanna.
- Ef það versta dyndi yfir FENGI FÓLK AÐ BÚA ÁFRAM Á HEIMILUM SÍNUM, þá væntanlega sem leigjendur.
Svo hörmuleg sem sú staða nú er / yrði / verður, sýnist manni það örlítið minni brotlending. Börnin fengju að vera áfram "heima", byggju áfram við skólann sinn, fengju að vera HEIMA. Jafnvel þótt það væri ekki nema að nafninu til.
Ég hef ekki minnstu hugmynd um hvað gerist EFTIR tilkynningar um NAUÐUNGARSÖLU. Kannski er þetta eitthvert formsatriði að auglýsa, en hvað svo?
Þarf fólkið að fara á götuna ef næst að selja eignina eða hún innkölluð á annan hátt af bankanum? Fær það að "leigja" heima hjá sér?
Hvers vegna greip maður til þess örþrifaráðs að brjóta og bramla húsið sitt, sem fjármálastofnun hafði tekið til sín vegna vanskila?
Fékk hann og fjölskylda hans ekki að "leigja" heima hjá sér?
Eru gefnar út tilskipanir eða tilmæli til peningastofnana. Ráða þær hvort og hversu hart verði gengið að fólki og heimilum þess.
Það kæmi ekkert á óvart þótt einhver fyndi sig knúinn að gera eitthvað sem honum annars dytti aldrei í hug.
Að brjóta niður eitt og eitt hús er hreinn barnaleikur miðað við það að brjóta niður fólk, fjölskyldur, barnssálir og brjóta niður traust í garð yfirvalda og stofnana - brjóta niður öryggi og traust til flestra, jafnvel til náungans.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
31.3.2009 | 14:54
Viltu nú ekki ættleiða bankastarfsmann? Gerðu það!
12.2.2009 | 02:31
Nýtum tímann, koðnum ekki niður, finnum samherja
Námskeiðin eru opin öllum og það er ekkert þátttökugjald.
Nýttu tímann:
Námskeið Fyrirlestrar Samvera
er ætlað að ná til atvinnulausra og þeirra sem hafa þurft að minnka við sig vinnu. Verkefnið er að sjálfssögðu opið öllum en áhersla er lögð á að ná til fyrrgreindra hópa. Áhersla er lögð á að leiðbeinendur komi úr röðum sjálfboðaliða og atvinnulausra. Leiðbeinendurnir þurfa ekki að vera fagmenn heldur bara sjálfboðaliðar með kunnáttu á viðfangsefninu hverju sinni.
Námskeiðin verða
mars, apríl og maí
á
mánudögum og miðvikudögum
kl. 10-13
í sjálfboðamiðstöð Rauðakrossdeildar Kópavogs
Hamraborg 11, 2.hæð
Kanntu fatasaum, Tai Chi, jóga, skák, bridds eða á GPS-tæki? Gætirðu hugsað þér að stjórna söngstund eða búa til súpu fyrir þátttakendur? Endilega komdu, og við hjálpumst að.