23.1.2009 | 20:33
Enginn hægðaleikur okkur að skapi
Rosalega finnst mér ég fyndin núna (brjah!), en ég meina þetta samt í fúlustu (úr dönsku "fuldest"= fyllstu) alvöru. Ég læt ykkur eftir að sjá út alvöruna í "fyndninni" og/eða "fyndnina" í alvörunni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.1.2009 kl. 04:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
23.1.2009 | 01:13
Aldrei gerir enginn ekkert
Þetta er tilfinning mín fyrir því hver sé tilfinning annarra nú á tímum!?!
Við erum ansi gjörn á að alhæfa um allt mögulegt og ómögulegt (ath. þarna datt ég strax með "allt")
Stjórnin er með ÖLLU óhæf (vanhæf í besta lagi : )
Þingmenn eru ALLIR fávitar
Stjórnin hefur EKKERT gert
Við fáum EKKERT að vita
Mótmælendur ofbeldisfullir! (hljómar eins og hverjum og einum einstaklingi sé laus höndin (eða gangstéttarhellan)
Er nokkur "sjens" að fá aðeins raunhæfari og þar með réttmætari upplýsingar?
"Prik" fyrir þann sem sér út, með báðum augum og skráir það hér að neðan:
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
22.1.2009 | 03:40
SAMFÉLAGIÐ...Á...SJÚKRABEÐINUM
Allir/flestir/margir eru löngu orðnir langeygir eftir upplýsingum frá yfirvöldum.
Við eigum auðvitað heimtingu á upplýsingum um stöðu mála. Okkar mála!
Skuldir hrannast upp og munu gera það í enn ríkari mæli; skuldir einstaklinga og skuldir ríkisins. Það er útilokað fyrir nokkurn mann að geta sér til um upphæðir og mögulega stöðu nú og þaðan af síður komandi tíma. Við höfum ekki einu sinni forsendur til að sjá fyrir hvort framtíðin sé yfirleitt til.
Við gætum ímyndað okkur tilkynningu um gífurlega skuld okkar við bankann. Svo þegar við spyrðumst fyrir, væri okkur sagt að það kæmi okkur ekki við. Það væri óskiljanlegt.
En svona líður fólki núna, flestu.
Reiðin, óttinn og vonleysið byrgir okkur kannski að einhverju leyti sýn. Þá fer maður að sjá allt í svart-hvítu. Það er ekki hægt segja allt sem við gjarnan vildum vita en það VERÐUR að leyfa okkur að fylgjast með. Minna má það ekki vera.
Þegar ég segi að ekki sé bara HÆGT að segja frá öllu á ég við SJÚKLINGINN ÍSLENSKT SAMFÉLAG.
Sjúklingurinn er á spítala og ekki vitað hvort honum sé hugað líf. Við höfum samband við yfirlækninn sem þó veit ekki hvers vegna þessi illvíga sýking hertók Í.S.
Við getum ætlast til að fá svör um líðan, blóðþrýsting, hjartslátt og öll helstu lífsmörk. Það er mælanlegt og niðurstaðan segir til um ástand þessara þátta þegar mæling fór fram.
Við gætum líka spurt um lyfjagjöf. Já, eitthvað hefur verið prófað. Sum meðulin virka fljótt og vel en svo þurfa önnur alllangan tíma til að árangur færi að sjást, - eða ekki.
Ýmsar rannsóknir hafa líka verið gerðar, en niðurstöður hafa ekki enn borist. Á meðan þær niðurstöður berast ekki er ekki hægt að beita "viðeigandi" lyfjum.
Við gætum varla ætlast til svara við spurningum um alla þessa óvissuþætti.
EN
VIÐ VERÐUM AÐ FÁ AÐ VITA HVORT SJÚKLINGNUM SÉ HUGAÐ LÍF
VIÐ VERÐUM AÐ FÁ AÐ VITA MEÐFERÐARÚRRÆÐI
VIÐ VERÐUM AÐ FÁ AÐ VITA HVAÐ GERT VERÐI TIL AÐ LINA ÞJÁNINGAR
HANS Á SJÚKRABEÐINUM
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
21.1.2009 | 04:18
Gullklumpur - - "FALIÐ VALD" - - Njótið með mér!!!
Bókin "Falið vald" hefur verið ófáanleg árum eða áratugum saman.
M.a.s. þær bækur sem skráðar eru "inni" á bókasafninu... finnast hvergi!! (reyndi oft)
Ég fór þess vegna að leita fyrir mér á netinu; hvort e-r kaflar væru e.t.v. til, útdrættir eða samantekt. Áhuginn dró mig svona ákveðið af því að mér var SAGT! að lesa hana : )
Svo, eins og gamla fólkið segir stundum; "nema hvað". Eftir smá klifur í netinu fann ég það sem ég leitaði að, en trúði því varla > > > BÓKARóþekktin var í öllu sínu veldi á netinu!!!
Ef einhvern tíma hefur verið ástæða til að lesa þessa bók af ákefð, þá er það nauðsyn og skylda núna.
Hérna er bókin. Hún er rétt rúmlega 100 bls:
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
21.1.2009 | 00:17
Búrmús bænir kött um kött
Ég hlýt að misskilja þetta. Vonandi fræðir mig einhver.
Getur það verið að við séum háð þeim sem við viljum losna við, með að losna við þá??%$# Verðum við að fá "leyfi" þeirra sem við viljum losna undan, hjá þeim hinum sömu? Ekki nógu vel fram sett, reyni aftur:
Verður Alþingi að samþykkja að gengið verði til kosninga? Stjórnin er stolt af því að vantrauststillaga hafi verið felld, og stjórnin standi því styrk.
Ég sé ekkert útúr því nema að þau séu ánægð með sjálf sig?!?
Hvernig förum við að því að fá að kjósa? Hvaða leið förum við? Hvernig er staðið að stjórnarskrárbreytingum?
Mig sannarlega langar að skilja þetta. Þetta getur ekki verið eins og að sakamenn hefðu það í sínum höndum hvort þeir yrðu látnir lausir eða sætu áfram ...
*1. á þingi
*2. í steininum
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.1.2009 | 17:37
Grímur með grímur
Ég get ekki skilið hvers vegna sumt fólk bölsótast svona yfir því að fólk í mótmælaaðgerðum, hylji að hluta andlit sitt. (þessi asnalega málnotkun "fólk í mótmælaaðgerðum" kom til eftir djúpa ígrundun um það hvernig hægt væri að komast hjá því að nota "mótmælendur". Þá hefði mér fundist ég verða að fjalla um kaþólikka líka)
Séu grímurnar notaðar sem skjöldur og skjól til að "fela" sig á bakvið, þegar framinn er einhver gjörningur sem hvorki þolir dagsljósið né undurfagra ásjónu gerandans, þá fordæmi ég gjörðirnar jafnt sem gunguháttinn.
Hitt er eðlilegt og mjög svo skiljanlegt og fjölmargar ástæður geta verið fyrir því að fólk vilji ekki þekkjast á myndum. Sjónvarpsvélar suða og myndavélar blaðamannanna smella.
Er það ekki skiljanlegt að afi vilji ekki sjást í sjónvarpinu í næsta fréttatíma? Það er ekki líklegt að afastrákur eða -stelpa skilji upp eða niður í tilefninu. (vonandi)
Svipað er með rólyndisömmuna sem horfir á sjónvarpsfréttirnar. Henni brygði örugglega illilega að sjá "barnið í einhverjum óeirðum". Jafnvel þótt "barnið" væri komið á þrítugsaldurinn : )
Fólk getur heldur ekki treyst því að vinnuveitandi og/eða samstarfsfólk hafi skilning á málefninu.
Ég man hvernig breyttist álit mitt á "fullkomna" barnakennaranum mínum, þegar ég sá hann eftir nokkur ár - með sígarettu : ( Þess vegna verður mér hugsað til kennara sem vill alls ekki láta "krakkana sína" í fyrstu bekkjum sjá sig á/í mynd frá mótmælum. Einhverjum kynni að þykja "óþægilegt" ef hjúkkan, læknirinn, presturinn sæjust í sömu aðstæðum.
Þá getur verið glúrið að hafa klút til að setja fyrir vitin ef von er á gasi. Svo heldur góður trefill vel hita þegar svona kalt er.
Kannski finnst einhverjum líka full ástæða til að troða vel fyrir nefið - svo mikil skítalykt er af mörgum málum í samfélaginu okkar.
MÓTMÆLUM ÁFRAM, MEÐ EÐA ÁN GRÍMU EN EINS OG SKYNSAMT OG SIÐAÐ FÓLK!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.1.2009 | 01:58
Skugga-Sveinn við slaghörpuna
Fór á sýningu Leikfélags Kópavogs, Skugga-Svein, í nýju aðstöðunni þeirra sem mig minnir að heiti einfaldlega; "Leikhúsið".
Annað hvort er Matthías Jochumson búinn að snúa sér marga hringi í gröfinni eða þá að hann er í banastuði núna. Hvort tveggja er nú reyndar mikið stuð.
Ótrúlega fjölhæfir leikarar komu manni skemmtilega á óvart, og það meira og minna út alla sýninguna. A.m.k. tveir spiluðu á píanó, svo kom fiðla við sögu, trommur og flauta (minnir mig?)
Nei, Skugga-Sveinn sjálfur var ekki með rollugæru á bakinu, eins og ég man eftir þegar ég sá þetta e-n tíma á síðustu öld.
Allt í lagi: Þetta er ekki líkt neinu, ekki einu sinni Útlögunum/Skugga-Sveini, nema söguþráðurinn er byggður á skáldverki Matthíasar.
Ungt fólk, unglingar og ungir í anda, hefðu sannarlega gaman að þessu stykki.
Ekki fælir verðið frá. Veit reyndar ekki hvort eitthvert tilboð var, en miðinn kostaði þúsund kall = segi og skrifa 1000 krónur
Menning og listir | Breytt 21.1.2009 kl. 03:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.1.2009 | 22:55
370 fjárglæframenn handteknir á Suðurlandi
Eiga það sko skilið. Búnir að sukka í því að eignast húsnæði og kaupa sér vöfflujárn. Skulda milljarða og vilja svo fá skuldirnar niðurfelldar. Til háborinnar skammar fyrir þetta Suðurlandspakk.
Nær væri að leyfa litlu græðlingunum að kaupa sér græðandi krem til að bæta sáran skaðann af því að hafa þurft að hætta að lagfæra hlutabréfaverð og stofna nýja banka og -útibú til að borga skuldir hinna fyrri.
Hverjir eru bakarar og hverjir smiðir?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.1.2009 | 02:17
Hrollvekja - - - dæmisaga
Kjörforeldrar mínir tóku af mér jörð sem ég átti. Ég mátti ekki einu sinni nota túnbleðil til beitar fyrir klárinn minn.
Þau nutu alls sem jörðin gaf af sér; seldu alla uppskeruna og heyið fyrir allgóðan pening.
Þau fjárfestu í ýmsum tólum, tækjum, rekstrarvörum og ýmsu efni. Þegar leið á voru þau búin að veðsetja allt sem þau höfðu til umráða og jörðina sem ég hafði alltaf átt, þótt ég hefði ekki mátt nota hana uppá síðkastið.
Þegar kom að skuldadögum þeirra lána sem veðin náðu yfir og þau áttu ekki orðið bót fyrir boruna á sér sögðu þau að eina leiðin til að bjarga eigninni og geta haldið áfram yrkja jörðina, væri að ÉG BORGAÐI af lánum og öllum öðrum skuldum?!?!?!
Engum dytti í hug að fara svona að í fiskveiðikvótakerfinu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.1.2009 | 21:13
Ef þú ert atvinnulaus, dapur, vonlaus, áhugalaus og vantar hvatningu og samherja...
Svona spyr fyrirbæri sem kallar sig
HLUTVERKASETUR
Ert þú atvinnulaus? Viltu auka virkni þína og orku? Er depurð og kvíði að hrjá þig? Viltu efla sjálfsmyndina? Er vonleysið að taka völdin? Viltu láta gott að þér leiða? Vantar þig hvatningu? Vantar þig samherja? Vantar þig hlutverk?
Minnkandi sjálfstraust og áföll hafa áhrif á almenna líðan. Við verðum að leita allra leiða til að halda heilsu; andlegri og líkamlegri, sérstaklega núna þegar allt virðist breytt. Með því að halda virkni gætum við auðveldar aðlagast breyttum aðstæðum og þar með bætt lífsgæði okkar og annarra. Hlutverkasetur hvetur þá, sem misst hafa hlutverk og/eða eiga við andlega vanlíðan að stríða til að koma og taka þátt í að byggja upp, koma reglu á lífið, og kynnast fólki í svipuðum aðstæðum. Starfsfólkið veitir einstaklingsmiðaða hvatningu og stuðning, í gegnum samveru, samskipti og sameiginleg verkefni, sem miða að því að efla getu einstaklings við að aðlagast. Þar starfa m.a. iðjuþjálfar, með sérþekkingu í að virkja fólk. Þá starfa einstaklingar sem komist hafa í gegnum hremmingar. Þið getið kynnt ykkur starfsemina (Laugavegi 26?) og/eða bent þeim á, sem í vanda eru staddir.
|