12.7.2009 | 01:39
Að ærast með stæl. Norðmaður gekk berserksgang.
mbl.is | 05.10.2006 |
Rústaði hyttunni í reiði sinni (innskot: hyttuna)
Rúmlega fimmtugur maður í Bærum í Noregi varð svo reiður þegar bankinn hans leysti til sín sumarbústaðinn hans að hann gekk berserksgang í bústaðnum og lagði innanstokksmuni alla í rúst. Bankinn, DnB NOR, hafði krafist þess að bústaðurinn, eða hyttan, yrði seld og höfðu tveir dómar gengið bankanum í hag í deilu um eignarhald á bústaðnum. Eftir að Bærum-manninum hafði verið tilkynnt um úrskurðinn hóf hann að vinna skemmdarverk sín. Hann sagaði gat á þakið og hellti steinsteypu yfir rafmagnstöfluna og í öll niðurföll.Þá reif hann baðherbergið og eldhúsið í tætlur, fjarlægði arininn og dreifði steypu og olíu um allt. Einnig lét hann vatn renna innandyra og bar á veggina efni sem geta gert að verkum að framvegis verði bústaðurinn óíbúðarhæfur.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Fjármál, Viðskipti og fjármál, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 01:55 | Facebook
Athugasemdir
Það vantar þetta "gen í okkur" Við kunnum ekki að ærast, allar lyddurnar flúðu Noreg í gamla daga.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 12.7.2009 kl. 02:01
Eitthvað norskt hefur þá sennilega leynst í húsbrotsmanninum "okkar" hmm?
Eygló, 12.7.2009 kl. 02:23
var ekki maður að rífa húsið sitt á Álftanesi um daginn ? mér sýnist að einstaka menn hafi þetta gen ;)
Óskar Þorkelsson, 12.7.2009 kl. 07:10
Guð hvað ég skil manninn vel...veit ekki hvað ég geri þegar (ekkert ef, bara spurning um tíma) ég hætti að geta borgað af kjallaraholunni minni...
Rut Sumarliðadóttir, 12.7.2009 kl. 10:26
Það ættu miklu fleiri að leggjast út í tjaldi. Helst í görðum þeirra sem ollu því hvernig komið er.
Úrsúla Jünemann, 12.7.2009 kl. 11:40
Úrsúla, þetta er besta tillaga sem ég hef séð, um mótmæli. Enginn hávaði, engin málning, engar skemmdir. Bara óþolandi pirringur fyrir "vini" okkar. Ekki það, löggumann tæki sennilega fljótt á okkur, - annað en á "umræddum" Mammonsgoðum.
Eygló, 12.7.2009 kl. 11:59
Voru ekki einhverjir franskir að hóta að sprengja verksmiðjuna sem þeir unnu í í loft upp. Það er eitthvað guts í þessu liði.
Finnur Bárðarson, 13.7.2009 kl. 17:49
Héðan í frá munu þeir sem hafa "guts" - heita "guttar" í mínum orðaforða.
Er þetta nýlegt með fransmennina og verksmiðjuna?
Eygló, 13.7.2009 kl. 18:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.