15.9.2009 | 03:45
Kexruglaðir Bretar
Herra minn trúr, hvaða ólyfjan hafa þeir nú sett í kex. Börn og fólk á öllum aldrei nýtur þess að maula kex.
Svo er talað um "hættulegasta" kexið og það þurfti endilega að vera það sem mér finnst með því besta...
... svo skellti ég upp úr ! ! !
Hafið þið oft brennt ykkur við að troða kexi (eða öðru) í bolla með brennheitum vökva?
Er mikið um að þið rekið kexkökur upp í augun á ykkur? Sennilega MJÖG nærsýnir þeir.
Guði sé laun fyrir svona fréttir ekki veitir af.
500 á sjúkrahús vegna kexáts | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Spaugilegt | Facebook
Athugasemdir
Hólmdís Hjartardóttir, 15.9.2009 kl. 07:31
Einhvern veginn ratar kexið á réttan stað hérna...
Rut Sumarliðadóttir, 15.9.2009 kl. 10:07
Er þá ekki komin ástæða til að banna kex?
Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 15.9.2009 kl. 20:45
Nei, nei, bara setja á það háskatt, til að standa undir kostnaði við læknishjálp t.d. hjá augnlæknum hahaha
Eygló, 15.9.2009 kl. 21:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.