18.4.2009 | 00:26
Eyddi of miklu í karlmenn og brennivín
Nú verður maður að spara á flestum ef ekki öllum sviðum eins og allir vita.
Eftir fallið hef ég aðeins drukkið kogara, portúgal, spíra og kardó.
>
>
> Það vandaðist þegar kom að því að minnka við mig í karlmönnunum, - og góð ráð dýr. En alltaf finnur maður leið >>>
Fyrir viðkvæma: Myndin er tekin með vitund og leyfi myndefnis, sem klæddi sig uppá sjálft, til gamans.
Flokkur: Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 00:28 | Facebook
Athugasemdir
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 18.4.2009 kl. 02:19
Haha, sama hér! Nema Kardó á þinginu í staðinn fyrir í maganum!
Rut Sumarliðadóttir, 18.4.2009 kl. 12:29
Í Vetmannaeyjum notuðu sumir skósvertu blandað í vatn. Ætla ekki að ganga svo langt, rakspírinn er miklu betri.
Finnur Bárðarson, 18.4.2009 kl. 17:52
Við stíginn meðfram sjónum í Kópavogi eru 1 meters háir ljósastaurar. Ætli það sé gert í sparnaðarskyni að hafa þá svona lága? Ætli dvergvaxnar konur séu vinsælar núna?
Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 18.4.2009 kl. 20:18
Hey..... hvað fær maður einn svona????
Linda Samsonar Gísladóttir, 18.4.2009 kl. 20:28
Húnbogi. Ég rak einmitt hnéð í svona ljósastaur um daginn. Örugglega sparnaðaraðgerð fyrir eða þá að dvergur situr í skipulagsnefnd.
Linda. Ebay
Eygló, 18.4.2009 kl. 20:37
Litlir karlar eru betri en stórir. Þeir eru vandvirkari og nostursamari, líka stórir á sinn hátt! Algjörar dúllur!
Björn Birgisson, 18.4.2009 kl. 22:56
Vín, söngur og karlmenn...
Eru litlir sparneytnari en stórir ?
Hildur Helga Sigurðardóttir, 21.4.2009 kl. 01:33
Þetta eru kannski mistök í sparnaði, eins og stundum vill verða þegar við reynum að draga saman.
Kannski étur þetta á við hross og með alls kyns aukaþarfir. Barnsleg hugsun mín var nú bara sú að fólk reynir að minnka við sig í húsnæði og kaupir stundum minni og þá vonandi sparneytnari bíla.
Æi, ég held ég verði að tala við ráðgjafa bankanna. Þá er maður öruggur!!!
Eygló, 22.4.2009 kl. 02:05
hvað af þessu er best með fiski...?
zappa (IP-tala skráð) 22.4.2009 kl. 17:43
Bíddu, ertu ekki að meina drykkina zappa? Ef svo er, þá tæki ég spírann en dash af portara í fiskinn, ef hann er gratíneraður
Eygló, 22.4.2009 kl. 20:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.